Alvarlegt bílslys varð í Kópavogi á öðrum tímanum í nótt. Ökumaður sem var á leið suður Kringlumýrarbraut með 4 farþega missti stjórn á bílnum í Fossvogi. Ók hann upp á vegrið sem skilur akreinarnar að og hentist bíllinn fram af brúnni niður á Nýbýlaveg þar sem hann valt niður grasbrekku og staðnæmdist upp á rönd.
Mjög heitt hefur verið í veðri á Norðurlandi og síðdegis í gær komst hitinn í 22,4 gráður í Ásbyrgi. Nærri 22 stiga hiti var á Möðruvöllum og mældust 21,6 gráður á Húsavík.
Þetta er algerlega ófyrirgefanlegt, segir Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands, um bráð, sem veiðimenn skildu eftir í plastpoka við Hálslón um helgina eftir að hafa hirt bringukjötið.